Ég fór í
Kolaportið á sunnudaginn og þar gerði ég
ágætiskaup. Missionið var að finna mér
frakka, helst camel-litaðann en svo rakst á þennan fallega bláa
80's flugfreyju frakka (eins og móðir mín kallaði hann) og varð bara frekar
ástfangin af honum.
Snilldin við portið er að þú getur fundið ýmislegt þar fyrir
engan pening. Þessi frakki átti að kosta 3000 kr. en ég fékk hann á
2000 kr. Þegar ég var að prútta hann sagði konan að það væri sjálfsagt að
prútta, við værum jú í kolaportinu =)
Ég keypti mér líka tvo hringa, einn hjá konu sem er með fastan bás í portinu og er að hanna alls kyns skartgripi úr steinum. Mig minnir að merkið hennar heiti
Andrea design. Hringurinn er rosalega fallegur og er gull og silfur húðaður og með einhverjum náttúrusteinum :) kostaði
7000 kr. mjög fair verð, held samt að hringarnir hjá henni séu aðeins dýrari en þessi var síðasti af svona gerð og því var hann aðeins
ódýrari ! Hinn hringurinn sem ég keypti var úr plasti, kostaði
2000 kr. Sem er dýrt á
"ports-mælikvarða" en ég varð að eignast hann líka !
Anyways þá fékk ég
góssið á 11 þúsund sem er bara nokkuð vel sloppið, ég meina maður fær varla
bómullarbol fyrir þann pening í dag !

Hérna er mynd af nýja frakkanum =) nýja
hvíta skottið fékk að vera frumsýnt með !


Hérna sést hvað frakkinn er síður, ég er ekki vön svona sídd en mér finnst það samt svoldið töff! fýlaði mig eins og
goth-ara í honum !

Hérna eru hringarnir tveir, þessi brúni er úr plastinu, en hinn er frá Andreu.. :)
-
Alex