Wednesday, October 27, 2010

Tískufyrirmynd

Uppáhalds tískufyrirmynd mín er Heather Renée Sweet betur þekkt sem Dita Von Teese. Frú Dita fékk snemma áhuga á tísku, hún ólst upp við að horfa á gamaldags Hollywood bíómyndir með mömmu sinni. Það hefur sett mark sitt á stíl hennar en hún sérhæfir sig einkum í '40s stíl. Dita æfði ballet og ætlaði upprunalega að verða ballerína en seinna notaði hún þann hæfileika sinn í burlesque dansatriðin sem hún er þekktust fyrir. Þegar Dita var unglingur fór hún með móður sinni að kaupa sinn fyrsta brjóstahaldara. Hún var eftirvæntingarfull en varð fyrir miklum vonbrigðum því hún fékk bómullar byrjanda haldara. Hugmyndir Ditu um nærföt voru aðeins rómantískari.

Seinna fékk hún vinnu á kaffihúsi sem var staðsett við hliðiná undirfataverslun og hún eyddi svo miklum tíma þar að á endanum bauðst henni þar vinna. Þetta var fetish (blæti) búð og þar fékk hún gríðarlegan áhuga á fetish-heiminum. Seinna byrjaði hún að dansa í klúbbum, þar var hún frumkvöðull af alls kyns búninga-atriðum. Fetish-heimurinn var svo heillaður af henni að hún fékk að prýða alls kyns forsíður á tímaritum þeirra. Upp frá því fékk hún ýmis módel verkefni, sýningar, dansatriði og kvikmyndatilboð. Hún sérhæfir sig meðal annars í pin-up myndum. Dita er einna þekktust fyrir að hafa verið gift tónlistarmanninum Marilyn Manson. Það hjónaband enntist þó ekki en það má segja að það hafi komið henni enn lengra á kortið.


Photobucket

Hvað tísku varðar þá hefur Dita meðal annars birtst á listum yfir best klæddu konur heims. Hún situr iðulega á fremsta bekk á tískusýningum Christian Dior og Marc Jacobs. Þetta eru meðal annars hennar uppáhalds merki og hefur hún veitt þeim innblástur í hönnun. Hún er talsmaður fyrir MAC snyrtivörurnar, hefur birtst í auglýsingaherferðum PETA og prýtt blöð á borð við Vogue, Elle, Vanity Fair svo eitthvað sé nefnt.

Stíll Ditu þykir mér ótrúlega sjarmerandi, hún nær að blanda 40's glamúr við dökka blætis erótík en á mjög fágaðan hátt. Hún heldur fast í sinn stíl, segist meira að segja sofa í vintage náttfötum. Hún fer aldrei út úr húsi án þess að vera klædd frá toppi til táar í 40's stíl. Ímynd hennar er það sem hún er frægust fyrir. Hún sér sjálf um málningu og hár, en hún litar náttúrulega ljóst hárið sitt heima. Hún hefur aldrei farið í ljós og heldur sig almennt frá sólinni, þegar hún fer út notar hún sólhlíf.
Dita hefur aldrei notað stílista, en hún orðaði þetta svo skemmtilega "the one time I hired a stylist, they picked up a pair of my 1940s shoes and said, 'these would look really cute with jeans'. I immediately said, 'You're out of here."


Photobucket

Það er ljóst að Dita hefur haft mikil áhrif, bæði tísku og list víðsvegar enda einstaklega svöl manneskja.

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket
Dita í Playboy, á elegant hátt!

Photobucket
Ótrúlega svalur kjóll, úff..

Photobucket
Mögulega fallegasti giftingarkjóll sem til er, Vivienne Westwood.

Photobucket
Dita að kynna Mac vörurnar

Photobucket
Manson og Teese, óvenjulega skemmtilegt par!

Photobucket

Fallega Dita...




Heimild
: True Hollywood stories, Wikipedia & google


-Alex

5 comments:

  1. Hún er yndisleg, hún er kvennleg, fáguð og falleg. Það er ekki annað hægt en að lýta upp til hennar sem style icon...flottur póstur!

    ReplyDelete
  2. Hún er eiginlega allur pakkinn; svöl, falleg, gáfuð og með ótrúlega flottan stíl.
    Ef ég hefði verið Manson, þá hefði ég ekki leyft hjónabandi að enda :p

    ReplyDelete
  3. Flott bloggfærsla hjá þér, Dita er svo skemmtileg. Æðislega dramatískar myndirnar af henni og Manson.

    ReplyDelete