Eitt það
skemmtilegasta sem ég skoða á netinu er japönsk street tíska sem ég tengdi alltaf við dúkkustílinn. EN þegar ég wikipedi-aði
japanese street fashion þá komst ég að þeirri niðurstöðu að ég vissi greinilega miklu minna en ég hélt. Street tískan er rosalega fjölbreytt og sköpunargleðin er allsráðandi. Það er ekkert skrítið að í landi þar sem 127 milljónir manns búa, langi sumum að vera
,,unique".Hérna eru nokkrir helstu stílarnir í japanskri götutísku:
Lolita (dúkkutískan)Tískan inniheldur marga mismunandi stíla og þemu. Lolítutískan er orðin ein stæsta og best þekkta japanska götutískan, núna hefur hún vakið áhuga á heimsvísu. Lolita er ,,krútttíska" Japans. Til eru margar gerðir af Lolitum eins og t.d. þessar:
Gothic Lolitla er undir áhrifum frá viktoríu tímabilinu. Goth Lolita klæðir sig oftast í dökka liti og hefur alls kyns fylgihluti með sér s.s. leðurblökur og köngulær. Pilsin sem hún klæðist eru oftast hné síð með miklu undirpilsi, blússurnar eru oftast reimdar og lace-trimmed. Hné háir sokkar eru loks hafðir við grófa skó eða stígvél til þess að fullkomna lúkkið.


Sweet Lolita er barnalegasti stíllinn, þemu eins og ævintýri, dýr og sakleysi eru allsráðandi. Vinsælasti innblásturinn fyrir sweet lolitur eru dúkkur og Hello Kitty. Pastel litir eru notaðir ásamt svörtum, dökkrauðum og bláum. Stórar hárslaufur, sæt veski og tuskudýr eru vinsælustu fylgihlutirnir.

Punk Lolita er tilraunakenndur stíll, mixað er saman punki við dúkkustílinn. Það getur litið út fyrir að vera illa samsett og brjálað.
Ganguro (hin japanska skinka)Ganguro tískan varð vinsæl meðal japanskra stelpna árið 2000. Týpískt ,,look" fyrir ganguro stelpu er að vera í skærum fötum, míní pilsum, með aflitað hár, mjög dökkan húðlit, gervi augnahár, svartan og hvítan eyeliner, mikið bling og vera í platform skóm.


Kogal (
dirty-skólastelpan)
Kogaltískan er tengd við skólabúninga nema pilsin eiga að vera mjög stutt. Lausir sokkar eru oft hafðir með. Þessi stíll kom í kringum 1990 og síðan þá hafa vinsældir hans minnkað.
Visual KeiÞað sem einkennir þennan stíl er svakaleg andlitsmálning, óvenjuleg hárgreiðsla og furðulegir búningar. Margar frægar japanskar hljómsveitir tileinka sér þennan stíl.
Androgyny er vinsælasta tegundin af þessari tísku en það er þegar manneskja sem um er að ræða passar ekki undir ákveðið kynhlutverk s.s. karlmennsku/kvenleika. Hljómsveitin
Tokyo Hotel myndi flokkast undir þennan stíl en þar er aðalsöngvarinn alveg eins og kona.

CosplayCosplay er stitting á ,,costume roleplay" sem er búninga- hlutverkaleikur. Sá sem tileinnkar sér þennan stíl hefur ákveðin karakter eða hugmynd í huga sem hann/ hún þarf að vinna með. Oft klæða þau sig sem manga, anime, tokusatsu eða tölvuleikjapersónur. Þau klæða sig líka stundum eins og karakterar úr leiknum sjónvarpsþáttum, fantasíu myndum eða eins og japönsk pop bönd. Það er þó minna algengt.


Persónulega þykir mér Gothic Lolita nettust!
Fann svo æðislega Lolitu síðu ---->
Hér Source: Wikipedia
Myndir: Google
-Alex