Tuesday, May 4, 2010

litað loð

Alveg frá því að ég sá myndir frá Isabel Marant ss10 línunni hef ég verið ástfangin af lituðum feldi. Ég rakst á eitt vestið á ebay fyrir nokkrum vikum, það var einmitt þetta með bleika feldinum sem að mig langaði mest í, í minni stærð, ónotað og keypt í Isabel Marant búðinni í París. Löng saga stutt.. ég hefði þurft að selja sálu mína til að hafa efni á því.


Hér er módelið Rosie Huntigton Whitely í bleika.



aðeins of fallegt.

Og hér er Caroline í sínu.


Þessar eru frá sýningunni sjálfri..




www.style.com - www.thecobrasnake.com - www.caroline.feber.se

Þetta er bara eitthvað svo fullkomið. Ég er virkilega íhuga einhverskonar DIY við fyrsta tækifæri. Stay tuned.

Snædís
xx

snilld

Photobucket

ohh þetta er æðisleg auglýsing frá Bodyshop! fann hana á pjattrófublogginu =)

-Alex

Monday, May 3, 2010

Vor vor vor..

Photobucket

Mamma er í:

Kjóll: Andersen & Lauth /Outlet
Úlpa: Vintage ( keyptum hana á sjúklega fatamarkaðinum)
Taska: Marc by Marc Jacobs/ Kron Kron
Sokkar: Topshop
Sólgleraugu: Ray Ban aviator / Optical studio

Photobucket

Kíktum á Eymundson bókakaffi..

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

mmm.. sumarið er að komaa!

Photobucket

Hann er í :

Frakki: H&M
Gallaskyrta: Wrangler/ Rokk & Rósir
Kakíbuxur: All saints
Skór: Kolaportið / Hjá gamla svala manninum

Photobucket

Ég er í:

Kápa: Oasis/ kolaportið- (Hjá konunni í horninu með stóra básinn)
Skyrtu-Kjóll: Andersen & Lauth /Outlet
Gallabuxur: Aftur / (keyptar á sjúklega fatamarkaðinum)
Taska: Vera Moda
Skór: Chie Mihara / Kron

Photobucket

Photobucket

Austurvöllurinn góði... það er ekki langt í það að hann verði þéttsetinn =)

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Nýju Gallabuxurnar =)


Kíktum í nokkrar búðir í dag, gerði þessi ágætiskaup í Outletinu í skeifunni, fann hinar ultimate íþróttabuxur við hæla! Sparkz buxur Belive it or NOT!.. Þær eru mjög nettar, gráar með síðu klofi...Mæli með því að kíkja þangað ef þið eruð í svipaðari leit ;) kostuðu ca. 1700kr !!
Löbbuðum laugarveginn og kíktum svo á bókakaffi.. Skoðuðum nýjustu blöðin..Þetta týpíska bara!

-Alex

Sunday, May 2, 2010

Síðasti skóladagurinn

Ég var að ljúka síðasta skóladegi mínum í menntaskóla á fimmtudaginn og ég verð að segja að ég er svolítið sorgmædd. Það er ljúft líf að vera lítill menntaskólanemi með engar áhyggjur! Hvað tísku varðar þá hefur MH (skólinn minn) mótað mig hvað mest! Það er ekkert eðlilegt hvað hver einasta manneskja í skólanum er með sérstakan og flottan stíl. Þegar nýtt trend kemur í tísku þá eru MH-ingar fljótir að verða sér úti um það.
Þar sem ég er fyrrverandi skinka úr verzló get ég sagt það með vissu að MH er svakalegur tískuskóli, þó að út á við haldi allir að MH-ingar klæðist gardínum og ullarpeysum ;)

Hér er outfittið sem ég klæddist (reyndar næst síðasta skóladeginum mínum)

Photobucket

Gallaskyrta: Rokk og rósir
Bolur: Andersen & Lauth
Klútur: Zara
Leggings: American apparel
Taska: All Saints
Skór: Irreglular choice


Photobucket

Þetta eru laaang uppáhalds skórnir mínir, keyptir í London ( eru með netverzlun)

Photobucket

Helgin var æðisleg, á Laugardaginn kíktum við á sjúklega fatamarkaðinn hjá Aftur-systrum og vinkonum þeirra, náði að kaupa buxur og mamma keypti hermanna úlpu...mjög flott.. hefði viljað kaupa meira en það var of troðið af fólki þarna! hef sjaldan séð jafn marga Trend-settera samansafnaða á einum stað. Allir voða smart og sætir! =)
Eftir fatamarkaðinn var ferðinni heitið beint í bústað, ljúúúft!

-Alex

Thursday, April 29, 2010

Pastel litir


















Kjóll: Opening Ceremony
Skór: Miu Miu
Taska: Chanel
Eyrnalokkar: Miss Selfridge
Ilmvatn: Baby by Gwen Stefani
Varalitur: Chanel Rouge

-Ingunn

Tuesday, April 27, 2010

Elle Italy

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Source: Caroline Winberg, Elle italy

Töff myndasería úr ítalska Elle. Mig langar í mjög margt þarna! smaaart =D

-Alex

Góss úr Portinu

Ég fór í Kolaportið á sunnudaginn og þar gerði ég ágætiskaup. Missionið var að finna mér frakka, helst camel-litaðann en svo rakst á þennan fallega bláa 80's flugfreyju frakka (eins og móðir mín kallaði hann) og varð bara frekar ástfangin af honum.
Snilldin við portið er að þú getur fundið ýmislegt þar fyrir engan pening. Þessi frakki átti að kosta 3000 kr. en ég fékk hann á 2000 kr. Þegar ég var að prútta hann sagði konan að það væri sjálfsagt að prútta, við værum jú í kolaportinu =)
Ég keypti mér líka tvo hringa, einn hjá konu sem er með fastan bás í portinu og er að hanna alls kyns skartgripi úr steinum. Mig minnir að merkið hennar heiti Andrea design. Hringurinn er rosalega fallegur og er gull og silfur húðaður og með einhverjum náttúrusteinum :) kostaði 7000 kr. mjög fair verð, held samt að hringarnir hjá henni séu aðeins dýrari en þessi var síðasti af svona gerð og því var hann aðeins ódýrari ! Hinn hringurinn sem ég keypti var úr plasti, kostaði 2000 kr. Sem er dýrt á "ports-mælikvarða" en ég varð að eignast hann líka !

Anyways þá fékk ég góssið á 11 þúsund sem er bara nokkuð vel sloppið, ég meina maður fær varla bómullarbol fyrir þann pening í dag !

Photobucket

Hérna er mynd af nýja frakkanum =) nýja hvíta skottið fékk að vera frumsýnt með !

Photobucket

Photobucket
Hérna sést hvað frakkinn er síður, ég er ekki vön svona sídd en mér finnst það samt svoldið töff! fýlaði mig eins og goth-ara í honum !

Photobucket

Hérna eru hringarnir tveir, þessi brúni er úr plastinu, en hinn er frá Andreu.. :)

-Alex